Nemendur 9.bekkja tóku á móti forsvarsmönnum Friðarhlaupsins í síðustu viku en Sri Chinmoy heimseiningar Friðarhlaupið er alþjóðlegt kyndilboðhlaup. Ísland hefur tekið þátt í þessu verkefni margoft, fyrst árið 1987, og hefur 10 sinnum verið hlaupið hringinn í kringum landið, auk smærri hlaupa.
Friðarhlaupið safnar ekki fé og leitar ekki eftir stuðningi við pólitískan málstað, heldur er markmiðið einfaldlega að minna á þann sammannlega frið sem finnst í hjarta hvers og eins.
Friðarhlaupið hefur þróað dagskrá fyrir heimsóknir í skóla sem tekur 40-60 mínútur og innifelur m.a. stutt hlaup á skólalóðinni, láta logandi friðarkyndilinn ganga á milli og jafnvel leik sem felur í sér að krakkarnir giska hvaðan alþjóðlegir meðlimir Friðarhlaupsliðsins eru.
9.bekkur tók á móti þessum flotta hóp sem er að fara um allt landið með Friðarhlaupið. Þau stóðu sig mjög vel og þeim var mikið hrósað fyrir að hlusta vel og þekkja til dæmis hvaðan hinir komu með því að hlusta á þau tala á sínu tungumáli.
Tóta íþróttakennari tók á móti gjöfum frá hópnum, mynd, kaffikrús og viðurkenningarskjali. Krakkarnir fengu vegabréf með stimplum frá 5 heimsálfum.