Tómas Máni, nemandi í 10.bekk, hefur sótt aukatíma í sköpun í vetur undir stjórn Halldóru Sigtryggsdóttur myndmenntakennara. Hann hefur vaxið og dafnað í myndlistinni en Dóra hefur verið dugleg að kynna fyrir honum ýmsar hliðar myndlistarinnar.
Tómas hefur mikið verið í því að mála Portrett-myndir og kom meðal annars færandi hendi á skrifstofur starfsmanna þar sem hann afhenti stjórnendum skólans portrettmyndir sem hann hafði málað af þeim. Hér fyrir neðan má meðal annars sjá glæsilega mynd sem Tómas Máni málaði af Eysteini skólastjóra.
Þar að auki hefur hann gert málverk, krítamyndir og klessumyndir en að sögn Dóru eru blýantsteikningar hans sterkasta hlið og þangað leitar hann alltaf aftur.
Það verður gaman að fylgjast með þessum efnilega listamanni í framtíðinni.