Upplýsingatækni er kennd í smiðju í 3.bekk. Í hverjum kennslutíma er farið á 3 stöðvar. Á einni stöðinni eru tölvur þar sem unnið er í fingrafimi. Með því er fingrasetning kennd og rætt um heimalykla. Í þessari viku var einnig byrjað að vinna með wordforritið. Á annarri stöð er frjálst í spjaldtölvu. Þá finnst börnunum gaman að fara í ýmiss öpp sem þau hafa kynnst í skólanum. Það tengist t.d. Sprotabókunum í stærðfræði og ýmsum gagnvirkum æfingum á mms.is. Á þriðju stöðinni er Ipad hjá kennara. Kennt er á Book creator, puppet pals, garage band og imovie. Í gær voru margir mjög spenntir fyrir að taka myndir fyrir imovie verkefnavinnuna sína. Á næsta þriðjudag klippa nemendur og hanna til og gera myndband og í síðasta tímanum fá allir að horfa á myndböndin hjá hverjum öðrum. Kennari barnanna hrósaði nemendum fyrir áhugann og góða virkni í tímum. Myndirnar tala sínu máli.