Fyrsti bekkur fór á tjaldsvæðið þar sem allir máttu leika saman. Skemmtilegt tilefni til að sameina hópana sem annars fá ekki að vera saman þessar vikurnar. Boðið var upp á kakó og piparkökur og voru allir mjög ánægðir og glaðir enda farið að styttast í jólin. Það er ljúft að geta farið með börnin á svona gott leiksvæði þar sem góð aðstaða er fyrir hendi.