60 fm íbúð er nú laus til umsóknar á 1. hæð í Víðihlíð. Forsenda þess að geta sótt um íbúðina er að umsækjandi uppfylli öll eftirfarandi skilyrði:
a. Umsækjendur um íbúðir skulu hafa náð 72 ára aldri.
b. Umsækjandi skal hafa átt lögheimili samfellt í sveitarfélaginu í 12 mánuði.
c. Umsækjandi sé í þörf fyrir félagslega aðstoð og stuðning til að geta búið á eigin heimili.
Heimilt er að veita undanþágur frá ofangreindum skilyrðum við ákveðnar aðstæður samkvæmt reglum Grindavíkurbæjar sem nálgast má í heild sinni hér.
Frestur til að leggja inn umsókn er tvær vikur eða til og með 13. maí nk.
Félagsmálanefnd Grindavíkur úthlutar íbúðinni á grundvelli mats á þörfum umsækjenda og er m.a. horft til andlegra, líkamlegra, fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna umsækjenda, auk húsnæðisaðstæðna.
Áætlað leiguverð 139.000 kr
Til að leggja fram umsókn um íbúðina þá smelltu hér.
Eingöngu er tekið á móti rafrænum umsóknum á netfangið midgardur@grindavik.is.