Deildarstjóra, leikskólakennara , þroskaþjálfa eða annað uppeldismenntað fólk vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík frá 11.ágúst næstkomandi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum leikskólakennara og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Leikskólinn er fjögra deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða - 6 ára. Við erum „Skóli á grænni grein“ og vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni – Uppeldi til ábyrgðar. Gleði, hlýja og virðing eru einkunnarorð skólans. Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu skólans.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun eða önnur uppeldismenntun
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
• Færni í samskiptum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Fríðindi í starfi
Grindavík er góður bær :) Fjölskylduvænn staður þar sem ungir sem gamlir hafa nóg að sýsla, svo er Grindavíkurbær þekktur fyrir frábært íþróttastarf. Leikskólinn Laut er þekktur fyrir frábæran starfsmannahóp sem er glaðlyndur og samstíga í leik og starfi.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 420-1160 og 847-9859. Umsóknir berist til leikskólastjóra á netfangið frida@grindavik.is
Endurnýja þarf eldri umsóknir. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2021