Á vef Vegagerðarinnar er auglýsing útboðs vegna viðgerðar á Kvíabryggju sem er löndunarbryggja fyrir smærri báta.
Kvíabryggja er fyrsta bryggjan sem smíðuð var í Hópinu eða árið 1944. Fyrsti hluti hennar steinsteypt en timburbyggjan sjálf er upphaflega byggð árið 1957. Árið 1971 var hún endurbyggð í núverandi mynd. Árið 1987 var steyptur landveggur aftan við þriðju stauraröðina og efri tangir festar í hann. Árið 1992 flaut bryggjan upp í óveðri og fóru þá töluverðar viðgerðir fram á mannvirkinu.