Grindavíkurbær óskar eftir að ráða starfsmann á Bókasafn Grindavíkur í 100% stöðu. Um tímabundið starf er að ræða, eða frá ágúst 2016 til júlí 2017. Starfið heyrir undir forstöðumann bókasafns. Starfið felst m.a. í afgreiðslu, frágangi safngagna, innheimtu á Safnbóka- og gagnakosti, umsjón með barnastarfi og safnkennslu nemenda ásamt öðrum tilfallandi störfum. Starfsmaður mun einnig taka þátt í kynningar- og fræðslumálum bókasafns í samstarfi við forstöðumann. Viðkomandi er jafnframt staðgengill forstöðumanns.
Menntun, reynsla og hæfniskröfur:
• Háskólapróf eða önnur menntun sem nýtist í starfi. Bókasafns- og upplýsingafræði, bókmennafræði, kennaramenntun eða sambærileg menntun er kostur
• Starfsreynsla á bókasafni er kostur
• Sjálfstæði í vinnubrögðum
• Frumkvæði og skipulagshæfni
• Góð tölvukunnátta
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
• Góð kunnátta í íslensku í ræðu og riti
• Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Andrea Ævarsdóttir forstöðumaður bókasafns í síma 420-1141 eða í tölvupósti andrea@grindavik.is.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsferil skal skilað rafrænt á netfangið andrea@grindavik.is. Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.