Grunnskólinn er sem óðum að komast á fullt skrið fyrir vetrarstarfið. Í næstu viku verða haldin samræmd próf í 4., 7. og 10. bekkjum skólans. 10. bekkur verður í prófum mánudag (íslenska), þriðjudag (enska) og miðvikudag (stærðfræði). Prófin byrja kl. 9 alla dagana. 4. og 7. bekkir verða í prófum fimmtudag (íslenska) og föstudag (stærðfræði). Prófin hjá þeim byrja einnig kl. 9.
Aðrir nemendur skólans mæta skv. stundaskrá og eru beðnir að taka tillit til prófanna í skólanum.
Þá byrja hinir árlegu haustfundir í skólanum við Ásabraut í vikunni. Að þessu sinni verða þeir með breyttu sniði því þeir eru haldnir á skólatíma með þátttöku nemenda og foreldra. 8. bekkir verð þriðjudaginn 25. september kl.10.20. 10. bekkur hefur lokið við kynningu sína en hún var 11. september. Nánar verður kynnt síðar hvenær 4.-7. bekkir verða með haustfundi.
9. bekkir verða síðan miðvikudaginn 19. september kl. 10.20. Báðir bekkirnir verða á sal skólans þar sem umsjónarkennarar hitta þá ásamt foreldrum. Kristinn Reimarsson frístunda- og menningarfulltrúi kemur á fundina. Foreldrar eru hvattir til að mæta á fundina og fylgjast með starfi barnanna í skólanum.