Uppstokkun varð á stjórnendateymi Grunnskóla Grindavíkur þegar hann tók til starfa í ágúst. Á meðal nýrra stjórnenda er Guðbjörg M. Sveinsdóttir sem var ráðin aðstoðarskólastjóri. Auk grunnskólakennaraprófs hefur Guðbjörg lokið námi í náms- og starfsráðgjöf og MPA námi í opinberri stjórnsýslu. Hún hefur reynslu af kennslu í grunnskóla, var rekstrar- og grunnskólafulltrúí á Fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar í 15 ár og staðgengill fræðslustjóra. Hún starfaði síðast sem náms- og starfsráðgjafi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
,,Ég hef komið að skólamálum með ýmsum hætti, sem kennari, starfsmaður skólaskrifstofu, fagstjóri og námsráðgjafi. Eftir að ég lauk námi í opinberri stjórnun þá fannst mér kjörið tækifæri að reyna fyrir mér sem skólastjórnandi. Ég starfaði einn vetur hér í Grindavík fyrir nokkuð mörgum árum síðan og hef mikla trú á þessu samfélagi. Það verður gaman að fá íbúa bæjarins til samstarfs um málefni grunnskólans. Ég hef mikinn áhuga á að leggja mitt af mörkum með nýráðnum skólastjóra, starfsfólki, foreldrum og börnum við að gera góðan grunnskóla enn betri. Þegar ég skoðaði gögn um skólann þá var greinilegt að metnaður og fagmennska ríkir meðal starfsmanna og það er spennandi að koma inn í slíkt umhverfi. Ég fann það líka fljótt að stjórnendur sveitarfélagsins hafa mikinn áhuga á skólastarfi og það skiptir miklu máli fyrir stjórnendur að finna slíkan áhuga," segir Guðbjörg.
Miðað við fyrstu kynni af skólastarfinu segir Guðbjörg að sér lítist mjög vel á starfið, nemendur og samstarfsfólkið. Við skólann starfar öflugt fagfólk sem hún hlakkar til að kynnast betur og vinna með.
,,Það er í mörg horn að líta þegar maður tekur við svona starfi og ég er enn að átta mig á hinum fjölbreyttu verkefnum. Ég er þessa dagana að átta mig á starfsemi skólans og skoða þá siði og venjur sem hér hafa ríkt. Einnig hef ég verið að ganga á milli kennslustofa til að komast betur í samband við nemendur," segir Guðbjörg.
Efla lýðræði innan skólans
Í nýju stjórnendateymi grunnskólans eru auk Guðbjargar þau Halldóra K. Magnúsdóttir sem tók við sem nýr skólastjóri. Þá var Ægir Viktorsson ráðinn deildarstjóri á unglingastigi, í stað Pálma Ingólfssonar sem er í ársleyfi, og Ásrún H. Kristinsdóttir verður áfram deildarstjóri á yngsta stigi. En hvaða áherslur verða í skólastarfinu undir þeirra stjórn?
,,Að sjálfsögðu þurfum við að kynnast öllu því góða sem verið er að gera í skólanum jafnframt því sem við reynum að innleiða nýjar hugmyndir. Við ætlum í vetur að vinna að gerð skólastefnu í samvinnu við starfsmenn, nemendur og foreldra og þar munu helstu áherslur og framtíðarsýn birtast. Mikilvægt er að skoða allt sem vel hefur verið gert við skólann og meta alla styrkleika til að byggja upp öflugt skólastarf í framtíðinni. Í vetur erum við að byrja að innleiða bekkjarfundi meðal nemenda. Það verkefni hefur það markmið að efla lýðræði innan skólans og kenna nemendum að koma skoðunum sínum á framfæri, hlusta á aðra og færa rök fyrir sínu máli. Einnig erum við að innleiða verkefnið Orð af orði sem miðar að því að efla orðaforða nemenda. Orðaforði nemenda hjálpar þeim í lestri og lesskilningi. Þetta verkefni er auðveldlega hægt að fær inn á heimilin í bænum t.d. með auknum lestri með börnum, spilum og umræðum um hverskonar málefni sem eru á döfinni," segir Guðbjörg.
Eflum jákvæðni
Grunnskólinn hefur starfað í anda Uppbyggingarstefnunnar undanfarin ár og verður það gert áfram að sögn Guðbjargar.
,,Starfsmenn hafa undanfarin ár verið að kynna sér þá stefnu. Uppbyggingarstefnan miðar að því að kenna börnum og unglingum að taka ábyrgð á orðum sínum og gjörðum og læra af mistökum sem gerð eru. Þannig fær einstaklingurinn tækifæri til að leiðrétta mistök og snúa aftur til hópsins hugdjarfari en áður. Tekið er á agamálum af jákvæðni og lögð áhersla á að nemendur finni lausnir sjálfir. Þannig eflum við jákvæðni og öllum ætti að líða betur. Við ætlum að leggja áherslu á fjölbreytta kennsluhætti þar sem við reynum að koma til móts við þarfir og styrkleika nemenda. Útikennsla og umhverfismál verða líka ofarlega í huga okkar og með þetta frábæra landslag sem hér er allt í kringum okkur þá eru okkur allir vegir færir. Við erum svo heppin hér í Grindavík að hafa sjóinn, fjöruna, hraunið, sanda og móa þannig að nemendur hafa nægan efnivið. Við viljum eiga gott samstarf við fyrirtæki og félagasamtök m.a. til að hjálpa okkur við eflingu útikennslu," segir Guðbjörg.
Skólinn er starfræktur á tveimur stöðum, hvaða áhrif hefur það á skólastarfið og hvernig reynið þið að starfrækja þetta sem eina einingu?
,,Við leggjum áherslu á að þetta er einn skóli á tveimur starfsstöðum. Við reynum eftir fremsta megni að tengja þessar tvær starfs-stöðvar. Stjórnendur eru með viðveru á báðum stöðum og fundir eru haldnir á báðum stöðum. Einnig erum við með í huga að stofna vinabekki til að tengja bæði eldri og yngri nemend-ur og einnig til að tengja nemendur á báðum starfstöðvunum. Kosturinn við að vera í þessum tveimur húsum er án vafa sá að rúmt er um nemendur og starfsfólk og það gefur okkur aukna möguleika á sveigjanleika og fjölbreyttum kennsluháttum," sagði Guðbjörg að endingu.
Mynd: Skólastjórnendur Grunnskóla Grindavíkur veturinn 2012-2013: Ægir Viktorsson deildarstjóri á unglingastigi, Ásrún H. Kristinsdóttir deildarstjóri á yngsta stigi, Guðbjörg M. Sveinsdóttir aðstoðarskólastjóri og deildarstjóri á miðstigi og Halldóra K. Magnúsdóttir skólastjóri.