Eins og áður hefur verið greint frá hefur komið í ljós galli í gervigrasinu í fjölnóta íþróttahúsinu Hópinu. Á fundi bæjarráðs var tekinn fyrir verksamningur milli Grindavíkurbær og Polytan GmbH um endurnýjun yfirborðs gervigrass í Hópinu vegna galla í gólfefninu. Verktaki mun hefja verkið 19. september 2012 og verður því að fullu lokið eigi síðar en 15. október 2012.
Bæjarstjóra falið að undirrita samninginn og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
Bæjarstjóra jafnframt falið að fara fram á að verktakinn sem byggði húsið sjái um þann kostnað sem af framkvæmdinni hlýst þannig að Grindavíkubær verði skaðlaus af gallanum.