Vetrarstarf eldri borgara hefur tekið stakkaskiptum eftir að félagsmiðstöðin Miðgarður var opnuð á neðstu hæð Víðihlíðar í fyrra. Að sögn Erlu Delberts, formanns Félags eldri borgara í Grindavík, hefur Miðgarður eflt félagsstarfið til mikilla muna. Eldri borgarar eru virkilega jákvæðir og ánægðir með aðstöðuna og ekki síst starfið og þá er starfsfólkið í Miðgarði alveg frábært og stjanar við fólkið í hvívetna að sögn Erlu.
Grindavíkurbær skipuleggur félagsstarf eldri borgara sem að þessu sinni hefur aldrei verið fjölbreyttara. Þá stendur Félag eldri borgara fyrir ýmsum uppákomum eins og dansleikjum og skemmtikvöldum.
„Það er frábært að hafa svona vistlega og bjarta félagsmiðstöð þar sem eldri borgarar geta komið saman og hist, spjallað og drukkið kaffi. Fólk sækir þangað mikið í afþreytingu," segir Erla.
Dagskrá eldri borgara má sjá hér á blaðsíðunni við hliðina en hún er fjölbreytt og ættu allir að finna þar eitthvað við sitt hæfi. Erla segir að sér lítist ljómandi vel á hana og hvetur hún alla eldri borgara að vera duglega og taka þátt eins og heilsa leyfir. Þátttaka í félagsstarfi léttir andan!
Í Miðgarði er t.d. handavinna sem alltaf er að aukast að sögn Erlu. Þar er einnig keramik, bingó og línudans sem nýtur mikilla vinsælda. Jafnframt er gripið þar í spil líkt og í safn-aðarheimilinu einu sinni í viku á báðum stöðum. Þá verður leikfimi í íþróttahúsinu í vetur einu sinni í viku og boccia verður þar einnig áfram líkt og undanfarin ár. Útskurður verður í gömlu slökkvistöðinni. Þar hafa karl-arnir verið í meirihluta en kvenfólkið sækir í sig veðrið. Vatnsleikfimi í sundlauginni verður endurvakin en hún er einkar heilnæm.
„Svo er Hópið, fjölnota íþróttahús okkar Grindvíkinga, opnað klukkan sex á morgnana og er opið til hádegis. Síðasta vetur fjölgaði stöðugt í hópnum. Þeir sem eru árrisulir mættu eldsnemma til að ganga en þeim sem finnst gott að sofa aðeins lengur mættu þá undir hádegi. Við töldum mest um 40 manns á einum degi sem er aldeilis frábært. Vonandi verður svona góð þátttaka í vetur," segir Erla.
Skemmtanalífið blómstrar!
Félagsstarfið er unnið í góðri samvinnu við Félag eldri borgara í Grindavík þar sem Erla gegnir formennsku.
„Við sjáum meira um skemmtanahaldið. Við höldum tvo dansleiki yfir vetrartímann, einn að hausti og hinn síðar um veturinn. Þá er boðið upp á eitt skemmtikvöld eftir áramót. Litlu jólin voru haldin í Miðgarði í fyrra og var alveg fullt hjá okkur eða um 90 manns og tókst ljóm-andi vel. Sama má segja um þorrablótið en í fyrra mættu 95 manns á Sjómannastofuna Vör, fengu góðan þorramat og svo var dansleikur á eftir. Í sumar stóð félagið fyrir dagsferð um Suðurlandið og var m.a. komið við á Sólheimum og víðar og fóru 30 manns í þá ferð. Eins og sést á þessari upptalningu er nóg um að vera hjá okkur og allir eru velkomnir," segir Erla.
Svo skemmtilega vill til að dóttir Erlu er Stefanía S. Jónsdóttir sem heldur utan um félagsstarf eldri borgaranna í Miðgarði fyrir hönd Grindavíkurbæjar. Aðspurð hvort það sé ekki þægilegt að hafa umsjónarmanninn og formanninn í sömu fjölskyldunni hlær Erla og segir að það sé alveg ágætt.
„Það kom hingað hópur í heimsókn frá Hveragerði sem forvitnaðist hjá Sirry um hvernig samstarfið við félag eldri borgara gengi. Hún sagði að það gengi ágætlega enda væri mamma sín formaður!. Þetta er svo þægilegt í litlu samfélagi. En fyrst ég lét hafa mig út í þetta á sínum tíma verður Sirrý að þola að hafa mig hangandi yfir öxlinni á sér í einhvern tíma," segir Erla og hlær.
Erla hvetur eldri borgara til þess að skrá sig í félagið. Best er að hafa samband við hana eða Loft gjaldkera.
Stjórn Félags eldri borgara skipa:
Erla Delberts formaður, sími 897 6318.
Loftur Jónsson gjaldkeri, sími 426 8087.
Margrét Brynjólfsdóttir ritari.
Pétur Vilbergsson meðstjórn.
Ólöf Þórarinsdóttir meðstjórn.
Þóra Sigurðardóttir meðstjórn.
Viðtalið við Erlu birtist í Járngerði sem kemur út í dag.
Vetrardagskrá eldri borgara má sjá hér.