Ákveðið hefur verið hverjir fái Umhverfisverðlaunin 2012 fyrir fallegustu garðana, snyrtilegasta fyrirtækið og vel heppnaða endurgerð á gömlu húsi. Líkt og undanfarin ár var óskað eftir tilnefningum frá bæjarbúum og bárust fjölmargar ábendingar. Eftir vettvangsferðir um ýmsa garða í síðasta mánuði var ákveðið að veita eftirfarandi verðlaun:
Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Staðarvör 8, Halla Kristín Sveinsdóttir og Þórarinn Kr. Ólafsson.
Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð: Marargata 7, Vilhelm Þór Þórarinsson og Vigdís Viggósdóttir.
Verðlaun fyrir vel heppnaða viðgerð á gömlu húsi: Steinar, Oddgeir Arnar Jónsson.
Verðlaun fyrir snyrtilegasta fyrirtækið: Ice-West ehf.
Grindavíkurbær þakkar margar góðar ábendingar frá bæjarbúum. Umhverfisverðlaunin verða afhent formlega á morgun og verður nánar greint frá því síðar hér á heimasíðunni og í Járngerði.
Efsta mynd: Staðarvör 8. Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð.
Bakgarðurinn á Staðarvör 8.
Marargata 7. Verðlaun fyrir fallegan og gróinn garð.
Tjörn og gróður að Marargötu 7.
Húsið Steinar. Verðlaun fyrir vel heppnaða viðgerð á gömlu húsi.
Ice-West. Verðlaun fyrir snyrtilegasta fyrirtækið.