Fisktćkniskólinn stađfestur sem skóli á framhaldsskólastigi

  • Fréttir
  • 30. ágúst 2012

Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur veitt Fisktækniskóla Íslands, sem hefur aðsetur í Grindavík, viðurkenningu sem skóli á framhaldsskólastigi til 31. júlí 2013 en þetta kom fram á fundi bæjarráðs í gær.

„Bæjarráð fagnar því að skólinn hafi hlotið viðurkenningu og vonar að hún sé fyrsta formlega skrefið á þeirri leið að framhaldsnám verði í boði í Grindavík, en lýsir jafnframt vonbrigðum með að viðurkenningin sé bundin við eitt skólaár.

Bæjarráð tekur undir með stjórn Fisktækniskólans að það sé afar brýnt að koma skólanum á fastar fjárveitingar byggðar á nemendaígildum eins og á við um aðra framhaldsskóla. Nauðsynlegt er að tryggja rekstraröryggi skólans svo hann geti séð lengra fram í tímann en eitt ár í senn og geti markað sér framtíðarstefnu og laðað að sér fleiri nemendur. 

Sjávarútvegur er ein meginstoð íslensks samfélags og hlýtur að vera metnaðarmál fyrir fiskveiðiþjóð að menntun í veiðum og vinnslu sé í boði. Án menntunar og framþróunar er hætt við að Íslendingar missi samkeppnisforskot sitt í sjávarútvegi.

Tekjur ríkisins af sjávarútvegi eru að hækka talsvert með hækkun veiðigjalda. Sveitarfélög fá ekki hlutdeild í þeim tekjum, nema að mjög takmörkuðu leyti. Veiðigjaldið á meðal annars að renna í menntun og rannsóknir í sjávarútvegi og styðja við greinina. Að mati bæjarráðs liggur beint við að veita hluta þess fjármagns til að byggja upp Fisktækniskóla Íslands og efla þannig menntun í grunngreinum íslensks sjávarútvegs," segir í bókun bæjarráðs.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!