Grindavík og Keflavík skildu jöfn 2-2 í lokaumferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu. Þórkatla Sif Albertsdóttir og Rebekka Salicki skoruðu mörk Grindavíkur sem náði tvisvar forystu í leiknum.
Grindavík fékk 20 stig í 14 leikjum, vann 6 leiki, gerði 2 jafntefli og tapaði 6, skoraði 28 mörk en fékk 38 á sig. Liðið er í 3. sæti en gæti dottið niður í það fjórða því liðin fyrir neðan eiga leiki eftir.
Sumarið byrjaði frekar erfiðlega en liðið átti frábæran endasprett. Alls komu 28 leikmenn við sögu í sumar og þar af nokkrar úr 3. flokki. Þórkatla Sif var markahæst með 7 mörk og Rebekka Salicki með 4.