Flottasti húsbíll sem komið hefur inn á tjaldsvæðið í Grindavík var þar á ferð um helgina. Þessi Man vörubíll sem búið er að breyta í húsbíl var fagurlega skreyttur á báðum hliðum og með lítinn bílskúr þar sem lítill 2ja sæta BMW bíll var svo dreginn fram í sunnudagsbíltúrinn!
Þessi ótrúlegi húsbíll var merktur Maria Dolore frá Ítalíu og vakti mikla athygli enda hefur annað eins ferlíki ekki sést á tjaldsvæðinu hér og þótt víðar væri leitað.
3ja dyra BMW, magnað farartæki!
Hér var eigandinn nýbúinn að taka BMW skutluna út úr bílskúrnum á húsbílnum. Bílskúrshurðin er beint fyrir framan litla bílinn.
Myndir: Bjarki Sigmarsson.