Bryggjan fćr međmćli hjá Tripadvisor

  • Fréttir
  • 17. ágúst 2012

Kaffihúsið Bryggjan fékk á dögunum sent bréf frá vefnum Tripadivor sem sérhæfir sig í umsögnum gesta um veitingastaði, gististaði, flugfélög, sumarhús o.fl. Í bréfinu kemur fram að þar sem kaffihúsið hafi fengið afbragðs umsögn muni vefurinn setja Bryggjuna á lista sinn yfir þá staði sem hann mæli með.

Aðalgeir Jóhannsson vert á Bryggjunni sagðist afar ánægður með þetta enda leggi þeir bræður sem eiga kaffihúsið upp úr persónulegri þjónustu og upplifun gesta .

Umsögn gesta um Bryggjuna má sjá hér en þar fær staðurinn topp einkunn hjá öllum þeim sem hafa skrifað um hann. 

Hér má sjá umsögn um Salthúsið í Grindavík á Tripadvisor sem einnig fær topp einkunn. Neðst á þessari síðu má einnig nálgast umsögn um aðra staði í Grindavík sem einnig fá mjög góða umfjöllun.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir