Fulltrúar Framsóknarflokks, Grindavíkurlista og Samfylkingarinnar funduðu í gærkvöldi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Grindavíkur. Kristín María Birgisdóttir, oddviti Grindavíkurlistans sem var áður í minnihluta, er bjartsýn á að saman náist í samtali við RÚV. Fundurinn í gær hafi gengið vel.
Hún segir að næsta skref sé að hittast á sunnudaginn. Farið hefur yfir málefnin en Kristín María segir að margt málefnaskrá Grindavíkurlistans hafi þegar verið framkvæmt. Nú sé rætt um nefndaskipan og verkaskipti.
Meirihlutinn sprakk í þrígang í Grindavík á síðasta kjörtímabil en það telur Kristín María ekki þýða að sá sem nú er í smíðum geti ekki haldið. Hennar skoðun sé sú að ef upp komi málefnaágreiningur sé ekki ástæða til að hanga á samstarfinu eins og hundur á roði bara af ótta við forsöguna, að sögn RÚV.
Viðræðurnar ganga bara mjög vel," segir Bryndís Gunnlaugsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Grindavík, í samtali við mbl.is.
Bryndís segir að fundinum sé nú lokið og næsta skref sé að fulltrúar framboðanna ræði við sitt bakland um mögulegt samstarf þeirra. „Við ætlum að hittast aftur á sunnudagskvöld," segir hún aðspurð um framhaldið.
„Það er mjög góður andi í viðræðunum og hann er bara í samræmi við það sem verið hefur í bæjarstjórn síðastliðin tvö ár," segir Bryndís sem segist aðspurð bjartsýn á framhaldið. „Ég er mjög bjartsýn á framhaldið og vonandi verður hægt að ganga frá samstarfssamningi snemma í næstu viku."
Þá ítrekar Bryndís að samstaða sé um að ekki verði skipt um bæjarstjóra enda sé núverandi bæjarstjóri, Róbert Ragnarsson, ópólitískur og hafi verið ráðinn af öllum. „Og þar af leiðandi munu meirihlutaskipti ekki hafa neinn aukakostnað í för með sér fyrir bæjarfélagið."