Nýliðin Verslunarmannahelgi var Grindvíkingum góð, einmuna veðurblíða var alla helgina og viðraði vel til útivistar. Gönguhátíð sem stóð frá föstudegi til mánudags tókst mjög vel í alla staði. Gönguhátíðin hófst
með innanbæjargöngu á föstudagskvöld og var þá gengið um Járngerðarstaðahverfið og endað í Flagghúsinu með kaffi og fróðleik.
Í tilefni af því að 100 ár eru frá því að hafist var handa við gerð akvegar til Grindavíkur var áhersla lögð á að kynna gömlu þjóðleiðirnar til og frá Grindavík. Laugardagurinn hófst með göngu um Skógfellaveg, gömlu þjóðleiðina milli Voga og Grindavíkur.
Á sunnudegi var genginn Prestastígur sem er milli Hafna og Grindavíkur og Árnastígur var genginn til baka. Á mánudegi var genginn Skipsstígur gamla þjóðleiðin milli Njarðvíkur og Grindavíkur. Þjóðleiðirnar voru gengnar að hluta og tóku um 3-5 tíma hver. Gönguhátíðin endaði í Bláa lóninu þar sem þáttakendur gátu notið þess að slappa af að lokinni göngu.
Gönguhátíðin var liður í Viðburða- og menningardagskrá Grindavíkurbæjar og var haldin í fimmta sinn. Leiðsögumaður í ferðum var Sigrún Jónsd. Franklín.
Meðfylgjandi myndir eru frá gönguhátíðinni um helgina.