Innbrot í grunnskólann - Upplýsingar óskast

  • Fréttir
  • 8. ágúst 2012

Lögreglunni á Suðurnesjum barst um helgina tilkynning um að brotist hefði verið inn í grunnskólann í Grindavík. Þegar lögreglumenn komu á vettvang sást að gluggi á norðurhlið hússins hafði verið spenntur upp.

Talsverðar skemmdir urðu á gluggaumbúnaði eftir áhald sem notað hafði verið til verksins.
Ekki er ljóst hvort einhverju var stolið úr skólanum en lögregla rannsakar málið. Þeir sem veitt gætu upplýsingar um grunsamlegar mannaferðir við skólabygginguna eru beðnir að hafa samband í síma 420-1800.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!