Taka ţátt í stórri hamfaraćfingu í Ţýskalandi

  • Fréttir
  • 1. ágúst 2012

Undanfarna viku hafa unglingadeildir frá Hafbjörgu í Grindavík og frá Reykjanesbæ verið í heimsókn hjá THW í Þýskalandi og tekið þar þátt í gríðarlega stórri hamfaraæfingu. Síðustu daga hefur hópurinn verið í póstavinnu að læra undirstöðuatriði rústabjörgunar og meðhöndlun verkfæra. 

 

Strax í upphafi var öllum þáttakendum skipt upp í hópa og skipa Íslendingar og Þjóðverjar einn 33 manna hóp sem kallast Alpha platoon. Á æfingunni eru einnig unglingadeildir frá Þýskalandi, Rússlandi, Tyrklandi og Rúmeníu, alls um 130 unglingar. Seint í kvöld verður svo haldið af stað í "útkall" þar sem að krakkarnir fá til umráða bílstjóra og bíla, en aka þarf um 150 km að æfingasvæðinu þar sem líkt verður eftir stórum jarðskjálfta. Hóparnir þurfa frá því lagt er að stað að vera alveg sjálfbær með mat, verkfæri og fleira í rúman sólarhring.

Eins og svo oft áður fær íslenski hópurinn mikla athygli hér fyrir framkomu sína og kunnáttu og er hrósað við hvert tækifæri. Þess má einnig geta að tveir af íslensku umsjónarmönnunum sáu um að kenna öllum hópunum fyrstu hjálp og tókst það mjög vel til. Á hverjum degi er birt nýtt myndband af því sem er í gangi og er íslenski hópurinn í aðalhlutverki í þessu hérna:

http://www.youtube.com/watch?v=A5YAio2PCBM&feature=plcp

Þeir sem vilja fylgjast með gangi mála geta gert það á Facebook:

https://www.facebook.com/groups/441586932528225/

Efri myndin er af hópnum í Þýskalandi og er af facebooksíðunni, sú neðri var tekin af Suðurnesjahópnum í fullum skrúða í Grindavík áður en hann hélt út.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!