Umhverfisviðurkenningar verða veittar að vanda í ágúst en þetta er í umsjá skipulags- og umhverfisnefndar. Að þessu sinni óskar nefndin eftir ábendingum frá íbúum bæjarins um fallega garða, fallega endurbyggingu á gömlum húsum og lóðum bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum.
Hægt er að koma ábendingum með því að senda upplýsingar á gudbjorg@grindavik.is eða með því að hringja í síma 420 1100 - einnig með því að setja inn á fésbókarsíðu bæjarins.
Lesa má um Umhverfisverðlaunin 2011 hér.