Þegar langt er liðið á sumar er líkur til þess að meðalumferð (ÁDU) um nýjan Suðurstrandaveg verði á bilinu 375 - 435 bílar á sólarhring á vegkafla 427-04 en 320 - 350 á vegkafla 427-11 eða um 350 bílar á sólarhring fyrir alla leiðina Þorlákshöfn í Grindarvík, samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.
Mesta umferð á einum sólarhring á vegkafla 427-04, mældist sunnudaginn 8. júlí 1126 bílar.
Mesta umferð á einum sólarhring um vegkafla 427-11, mældist sömuleiðis 8. júlí eða 1074 bílar.
Mynd: Róbert Ragnarsson bæjarstjóri Grindavíkurbæjar og Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri Ölfuss við vígslu Suðurstrandarvegar í sumar.