Tímaritið Icelandic Time hefur gert nýtt kynningarmyndband um Grindavík. Handritshöfundur og kynnir er Bergur Ingólfsson leikari og er myndbandið á léttu nótunum eins og Bergs er von og vísa. Er óhætt að fullyrða að nálgun hans á þessu kynningarmyndbandi um Grindavík sé frumleg og skemmtileg.
Bergur kemur víða við í kynningu sinni á bænum. Höfnin skipar veglegan sess en Bergur fer m.a. í fjórhjólaferð, hellaskoðun, kemur við á matsölustað, tjaldsvæðinu, Kvikunni, Bryggjunni, Hópsnesi, Gunnuhver og fleiri áhugaverðum stöðum og jafnframt er komið við á Sjóaranum Síkáta.
Á myndinni má sjá Berg við tökur á kynningarmyndbandinu.
Kynningarmyndbandið má sjá hér að neðan: