Atvinna - Starfsmađur viđ íţróttamiđstöđina

  • Fréttir
  • 20. júlí 2012

Grindavíkurbær auglýsir eftir starfsmanni til að starfa við íþróttamiðstöðina. Helstu verkefni eru öryggisgæsla í sundlaug, klefavarsla í karlaklefum, ræstingar, eftirlit og afgreiðsla. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

 

Leitað er að einstaklingi sem hefur;
- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, getur unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum,
- reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum,
- þekkingu í skyndihjálp og getu til að standast kröfur sem gerðar eru til sundlaugarvarða.

Vakin er athygli á því að ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ GRINDAVÍKUR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 660 7304, netfang: hermann@grindavik.is.

Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar (www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi þriðjudaginn 31. júlí n.k.

Grindavíkurbær.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál