Oddur V. Gíslason björgunarskip Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar í Grindavíkur var kallað út klukkan hálftólf í gærkvöldi vegna vélarvavna línubáts 15 sml sunnan Þorlákshafnar. Gott veður er á svæðinu og lítil hætta talin vera á ferðinni.
Björgunarskipið tók bátinn í tog og var væntanlegt til Grindavíkur með hann nú í morgun. Bilaður startari varð til þess að óskað var aðstoðar. Þetta var annað útkall Odds V. Gíslasonar á hálfum sólarhring.