Vinnuskóli Grindavíkurbæjar hefur staðið sig með mikilli prýði í sumar undir stjórn Péturs R. Guðmundssonar. 8. bekkur lauk sínu sumarstarfi fyrir Grindavíkurbæ um miðjan júlí. Haldið var lokahóf fyrir krakkana þar sem þau fóru m.a. í ratleik og síðan var grillveisla.
Í ratleiknum voru fimm hópar sem tóku þátt. 8. bekkingarnir þurftu að finna upp á nafni fyrir hópinn og á einum staðnum þurftu þau að semja tveggja línu texta til að fá að halda áfram í leiknum. Setningarnar áttu að vera um það sem þeim fannst skemmtilegt við Vinnuskólann og hér er afraksturinn:
Sláttuhópurinn
Gaman er að slá og raka,
best er samt að hvíla og raka.
Regnbogarnir
Gogga er mjög gaman
sópa er stuð.
Nafnlaus hópur
Við reytum arfa og höfum gaman.
Það er svo gaman að gogga saman.
Kristín og Willi hópurinn
Það er gaman að reita arfa og moka,
það er líka gaman að gogga.
Gumma og Jóns hópurinn
Við elskum kökudaga
og líka föstudaga.
Hér má sjá nokkrar myndir frá lokafjöri 8. bekkjar.