Menningar og sögutengd ganga um sögusvið Tyrkjaránsins í tengslum við Söguskiltið
Menningar- og sögutengd ganga um gamla Járngerðarstaðahverfið, sögusvið Tyrkjaránsins
í Grindavík 1627.
Menningar- og sögutengd ganga í boði Grindavíkurbæjar og Saltfiskssetursins verður
laugardaginn 21. okt. og hefst kl. 11:00. Gangan hefst við nýja skiltið af Járngerðarstöðum, sögusviði Tyrkjaránsins 1627. Skiltið
er við gatnamót Verbrautar og Víkurbrautar.
Genginn verður hringur um hverfið m.a.: að þeim stað þar sem að þjóðsagan segir
að ?tyrkjaþistill? vaxi. Gengið verður að dys Járngerðar og Járngerðarstaðabæjunum.
Síðan verður gengið til baka meðfram strandlengjunni, með Járngerðarstaðavíkinni
og vörunum, að gömlu bryggjunni og ýmislegt skoðað sem fyrir augu ber á leiðinni.
Leiðsögumenn Reykjaness sjá um fræðsluna og leiða gönguna. Reynt verður að gera
gönguna bæði skemmtilega og fræðandi fyrir alla fjölskylduna. Uppákomur s.s. hákarlasmakk
o.fl.. Gangan endar við gamla Flagghúsið, sem verið er að endurgera og verður
til sýnis í tilefni dagsins. Sjólist, handverkshús verður jafnframt opið.
Gangan tekur um einn og hálfan klukkutíma með fræðslustoppum. Fólk búi sig eftir
veðri..