Leikskólarnir í Grindavík eru komnir í sumarfrí. En elstu börnin á leikskólanum Laut sem ganga nú undir nafninu Prakkarar í Draugskógi fóru í dögunum í starfskynningu á fótboltavöllinn. Bergsteinn Ólafsson vallarvörður og Scott Ramsey vallarstafsmaður og leikmaður meistaraflokks tóku á móti krökkunum og fóru með þau um fótboltasvæðið.
Scott Ramsey sýndi boltakúnstir og spilaði fótbolta með krökkunum. Strákarnir voru m.a. spurðir hvort þeir vissu hver væri þjálfarinn hjá meistaraflokki karla og þeir voru ekki lengi að svara:
- Já, Páll Óskar.
Fleiri myndir frá deginum má sjá hér á heimasíðu Lautar.