Ómar Smári Ármannsson heldur úti hinum fróðlega og skemmtilega vef Ferlir.is. Þar skrifar hann ýmsan fróðleik m.a. um Grindavík og segir gjarnan frá gönguferðum sínum um land Grindavíkur. Í tilefni af því að FERLIRsferðirnar ná tölunni 1800 laugardaginn 21. júlí verður gamla Selvogsleiðin gengin frá Bláfjallavegi í Selvog. Leiðin er um 22 km. Mæting á Bláfjallavegi neðan Grindaskarðs kl. 10:10.