Bæjarráð Grindavíkur hefur samþykkt að endurprenta öll minja- og örnefnakortin á skiltastöndunum sjö er sett hafa verið niður í gömlu byggðinni, áhugasömu og fróðleiksfúsu fólki um sögu byggðalagsins til ánægju.
Eldri skiltin voru prentuð á pappír og sett undir plast, en hin nýju verða prentuð á ál með sérstakri plastfilmu yfir.
Hér er uppdráttur af Staðarhverfi. Tilgreindir bæir eru 28, auk eins er ekki var vitað nafnið á. Nú er orðið ljóst að bærinn sá hét Ölfus, að því er fram kemur á ferlir.is