Þorbjörn h/f kynnir saltfiskinn fyrir matreiðslumeisturum
Klúbbur matreiðslumeistara heimsótti Þorbjörn hf. á dögunum og tók Einar Lárusson,
þróunarstjóri, á móti þeim í saltfiskvinnslunni þar sem hann sýndi þeim vinnsluferlið
frá upphafi til enda.
Einar byrjaði á að lýsa veiðunum og frágangi aflans úti á sjó og sýndi áhugasömum
gestunum í kör máli sínu til stuðnings. Síðan sýndi hann hvar fiskurinn fer í
gegnum vigtun, hausingu, flökun,þunnildaskurð, snyrtingu og sprautusöltun. Mikla
athygli vakti ný vél frá Marel sem sker þunnildin en hún var tekin á notkun nýlega
og sparar mörg handtök.
Hópurinn skoðaði síðan þurrsöltunarferlið og voru uppi hugmyndir meðal gestanna
hvernig leysa mætti tæknileg vandamál sem glímt hefur verið við undan farin ár.
Þá voru skoðuð kör á miðju gólfi þar sem blöstu við björt og falleg flök í pækli
sem biðu þess að fara í þurrsöltun. Pökkunarkerfið vakti athygli og eins nýjar
saltfiskumbúðir þar sem fram kemur veiðiskip og rekjanleiki vörunnar, hvar og
hvenær fiskurinn er veiddur.
Að skoðunarferðinni lokinni var hópnum boðið í Salfisksetrið þar sem Eiríkur
Tómasson, forstjóri, tók á móti hópnum og kynnti fyrirtækið í máli og myndum.
Þá skoðuðu gestirnir sýninguna um sögu saltfiskverkunar á Íslandi og kom í ljós
að margir gestanna höfðu ekki gert sér ferð áður til að sjá sýninguna og kom hún
þeim á óvart fyrir hve vönduð og upplýsandi hún var.
Næst lá leið gestanna í skrifstofubyggingu Þorbjarnar en þar hafði Sigurgeir
Sigurgeirsson, veitingamaður í Grindavík, matreitt saltfisk á þrjá mismunandi
vegu. Fyrsti rétturinn var eins og saltfiskurinn var verkaður í gamla daga í Grindavík,
næsti var varkaður eins og hann er fluttur til Spánar í dag og sá síðasti eins
og Einar sagði í kynningu, hvernig við viljum hafa saltfiskinn í framtíðinni.
Einar vildi fá gestina til að gefa réttunum einkunnir til geta metið hver af
þessum þremur verkunaraðferðum þeim hugnaðist best og eins útskírði hann forréttinn
sem var framreiddur úr hráum saltfiski sem hafði verið litaður með nokkrum litum,
gulum, rauðum, hvítum og svörtum. Gestirnir voru hrifnir af veitingunum og forvitnir
um litunaraðferðirnar í forréttinum og ekki var laust við að framtíðarverkunaraðferðin
hefði haft vinninginn þegar upp var staðið eftir skemmtilega og fróðlega heimsókn,
engu að síður vakti gamla verkunaraferðin upp gamlar og góðar minningar.
Eftir Kristin Benediktsson