Um síðustu helgi fóru fram árlegt fótboltamót á Blönduósi, svokallaðir Smábæjarleikar, sem Grindavík hefur tekið þátt í undanfarin ár. 6. og 7. flokkur tóku þátt í mótinu og stóðu sig með mikilli prýði. 7. flokkur A gerði sér lítið fyrir og vann sitt mót með nokkrum yfirburðum.
Á myndinni er 7. flokkur ásamt þjálfara sínum, Garðari Páli Vignissyni.