Gnúpur GK 11 landaði í Grindavík í byrjun júní 760 tonnum af úthafskarfa, þorski, ufsa og grálúðu. Verðmæti aflans var kr. 298 milljónir og er það mesta verðmæti sem skip Þorbjarnar hf. hefur komið með úr einni veiðiferð en túrinn var 34 dagar.
Þá var haldinn fundur með starfsfólkinu í Þorbirni í matsal fyrirtækisins að Hafnargötu 12. Tilefnið var að fara yfir og ræða áhrif frumvarpa ríkisstjórnarinnar á starfsemi fyrirtækisins og starfsfólk þess. Í kringum 150 manns mættu á fundinn. Nánar um fundinn hér.
Frá fundi Þorbjarnar hf. með starfsfólki sínu. Mynd: Þorbjörn hf.