Lið Grindavíkur sigraði KA-menn í gær fyrir norðan í 16-liða úrslitum bikarkeppni KSÍ. Fóru leikar 3 - 2 þar sem Ameobi leikmaður Grindavíkur skoraði sigurmarkið í uppbótartima. Samkvæmt umfjöllun á netsíðunni fotbolti.net var leikurinn ansi fjörugur og sigurinn hæglega getað orðið heimamanna sem fengu nokkur góð færi en Óskar Pétursson stóð fyrir sínu í markinu. 16-liða úrslitum bikarkeppninnar lýkur í kvöld. Sjá nánari umfjöllun hér.