Grindavíkurbær bauð í gær til kaffisamsætis í Kvikunni í tilefni af opnun Suðurstrandarvegarins. Ögmundur Jónasson, ráðherra samgöngumála, ásamt föruneyti og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri ásamt fleira góðu fólki mættu í Kvikuna. Í boði var tónlistaratriði sem Jón, Páll og Pollinn sáu um og svo var Ómar Smári Ármannsson með mjög fróðlegt erindi um sögu Suðurstrandavegar og þær menningarminjar sem eru við veginn á leiðinni frá Þorlákshöfn og að Grindavík. Ávörp fluttu Róbert Ragnarsson bæjarstjóri, Ögmundur Jónasson og Hreinn Haraldsson. Athöfnin tókst vel og var ráðherra ánægður með móttökurnar.
Ráðherra (þriðji f.h.) ásamt föruneyti.
Hluti gesta sem mættu.
Í tilefni dagsins.
Ómar Smári Ármannsson.