Nú í vikunni var síðasti starfsdagur Marteins Karlssonar hjá Olís í Grindavík. Marteinn hefur verið starfsmaður frá því í júní 1999 og því starfað hjá fyrirtæknu í samtals 13 ár. Af þessu tilefni ákvað umboðsmaður Olís í Grindavík að koma Marteini á óvart með smá kveðjusamsæti og boðaði helstu kaffispekinga Olís í kaffi rétt fyrir kl. 18:00 á þriðjudaginn án þess að Marteinn hafði hugmynd um hvað um væri að vera. Þetta kom honum þægilega á óvart og var hann kvaddur með virtum af helstu viðskiptavinum Olís. Meðfylgjandi eru nokkrar myndir
Síðasti viðskiptavinurinn afgreiddur.
Biðröð eftir að komast að kökunni.
Tertan góða sem rann ljúflega niður.