Í tengslum við Sjóarann síkáta var settur af stað söguratleikur sem Sigrún Jónsdóttir Franklín útbjó og hafði umsjón með. Ratleikurinn er í gildi fram að Jónsmessugöngunni n.k. laugardag og því er síðasti frestur til að skila lausnarblöðum fyrir kl. 17:00 á laugardaginn í Kvikunni, auðlinda- og menningarhúsi Grindavikur.
Söguratleikur Grindavíkur 2012 hefur þemað „söguminjar"; þurrkbyrgi, ísbyrgi, sjóvörður, refagildrur, þurrkgarðar, sjóvarnargarðar, landamerkjavörður, sjó- og verslunarbúðir - allt minjar sem minna á forna tíð í Grindavík.
Ratleikurinn er auðveldur og fróðlegur útivistarleikur, sem hentar öllum. Tilvalin leið fyrir fjölskyldur til að sameinast í hollri hreyfingu og fræðast um leið. Leitað er að spjöldum á stöðum sem merktir eru á ratleikskortið eða vísað á þá. Sjá nánar hér í Járngerði á bls. 12-13 en þar er blað til að fylla út sem skal svo skila í Kvikuna.