Sú hefð hefur skapast í Grindavík í tengslum við 17. júní að fjallkonan heimsækir eldri borgara á Víðihlíð að lokinni hátíðarathöfn. Stefanía Margeirsdóttir, fjallkonan í ár, fylgdi þeirri hefð og fór í heimsókn í gær. Svo skemmtilega vildi til að einn heimilismaður, Ágústa Sigurðardóttir, átti afmæli og varð 79 ára. Það gladdi hana mikið að fá mynd af sér með fjallkonunni og ekki síður að Stefanía spjallaði um stund og drakk með henni kaffi.