Hátíðarhöld 17. júní í Grindavík fóru fram í ágætis veðri í gær við Kvikuna, auðlinda- og menningarhús Grindvíkinga. Mikið var lagt upp úr dagskráratriðum fyrir börnin en þar komu við sögu, Brúðubíllinn, Ingó töframaður, Íþróttaálfurinn og Solla stirða, trúðar voru á svæðinu, hægt var að fara á hestbak, hoppa í hoppuköstulum og svo má ekki gleyma söngvakeppni barnanna.
Eftir karamelluregn á Landsbankatúninu var gengið fylktu liði að Kvikunni þar sem dagskráin fór fram. Dagskráin hófst með ávarpi Bryndísar Gunnlaugsdóttur forseta bæjarstjórnar og í kjölfarið kom ávarp fjallkonu sem að þessu sinni var Stefanía Margeirsdóttir. Góð mæting var á hátíðarhöldin og fór allt vel fram. Myndir segja meira en mörg orð og látum við nokkrar myndir fylgja hér með.
Bryndís Gunnlaugsdóttir forseti bæjarstjórnar og Stefanía Margeirsdóttir sem var fjallkonan í ár.
Trúðurinn "sugar" sá um að kynna atriði hátíðarinnar.
Það voru fleiri trúðar á svæðinu. Þessi var flottastur.
Gestatrúðar mættu á svæðið.
Hluti af danshópnum "Dance Queens" sýndi dans.
Fín mæting var á hátíðarhöldin. Hér fylgjast yngstu börnin með sýningu Brúðubílsins.
Að fara á hestbak er alltaf vinsælt.
Íþróttaálfurinn og Solla stirða með unga aðstoðarstúlku (Sögu Guðlaugsdóttur) á sviðinu.
Dansað í takt.
Trúðurinn "Sugar" skemmti börnunum og fékk þau í lið með sér.
Björn úr Horn á Höfði mætti í lok dagskrár og vakti lukku.