Kvennahlaup ÍSÍ fór fram í bíðskaparveðri í Grindavík nú í morgun. Rúmlega 100 konur tóku þátt í hlaupinu að þessu sinni sem er heldur færra en undanfarin ár. Starfsfólk sundlaugarinnar hafði veg og vanda að framkvæmd hlaupsins og var tekið vel á móti öllum sem komu í mark með ávöxtum og drykkjum. Að sjálfsögðu fengu svo allar verðlaunapening sem viðurkenningu fyrir þátttökuna. Með fréttinni eru nokkrar myndir frá hlaupinu.
Þórkatla mætti á hjólinu sínu. Klár í slaginn.
Þórkatla fékk svo að sjá um upphitun og stóð sig vel.
Beðið eftir að hlaupið verði ræst.
Allir virkir í upphitun.
Veitingar sem biðu hlaupara. Starfsfólk sundlaugarinnar hafði veg og vanda
að framkvæmd hlaupsins.
Frænkurnar ánægðar eftir gott hlaup.
"Á hvaða tíma hljópst þú"???
"Veit það ekki. Bara hljóp eins hratt og ég gat svo ég fengi appelsínu."