Kvennahlaup ÍSÍ fer fram um allt land á morgun laugardaginn 16. júní. Að venju verður hlaupið frá Sundlaug Grindavíkur kl. 11:00. Vegalengdir í boði: 5 km og 7 km. Forskráning er hafin í sundlauginni. Skráningagjald er 1.250 krónur, bolur og verðlaunapeningur innifalinn. Verðinu er eins og áður stillt mjög í hóf til að gera sem flestum mögulegt að taka þátt.
Kvennahlaupið er tilvalinn vettvangur fyrir konur til að byrja holla og góða hreyfingu. Kvennahlaupið er ekki keppnishlaup. Auðvitað eru sumar konur sem taka þátt, í keppni við sjálfar sig og vilja ná betri árangri en síðast. Markmið með hlaupinu er hins vegar að vekja konur til umhugsunar um mikilvægi hollrar hreyfingar og útiveru. Hlaup eru hreyfing til fyrirmyndar!