Líkt og bæjarbúar hafa tekið eftir hafa verið talsverðar framkvæmdir í gangi við tvær innkomuleiðir í bæinn, við Grindavíkurveg og Austurveg. Framkvæmdirnar eru samkvæmt umferðaröryggisáætlun Grindavíkurbæjar og miða að því að auka öryggi yngstu vegfarenda, sérstaklega skólabarna enda byggja framkvæmdirnar aðallega á ábendingum þeirra eftir að þau teiknuðu sínar helstu gönguleiðir í Hópsskóla inn á kort á fundi með bæjarstjóra og tæknideild.
Eftir að Hópsskóli var tekinn í notkun fyrir 1.-3. bekk hafa gönguleiðir skólabarnanna í bænum tekið breytingum. Eftir fundina með krökkunum kom í ljós að bæta þurfti umferðaröryggi þeirra og m.a. var sett upp girðing meðfram göngustíg í Kúadal svo börnin væru ekki að þvera aðal innkomuleiðina í bæinn nema á gangbrautum.
Svo virðist sem einhver sé ósáttur við þessar framkvæmdir og lét það í ljós í nótt með því að klippa á girðinguna. Er tjónið metið á nokkur hundruð þúsund krónur. Eru allir þeir sem kunna að hafa einhverjar upplýsingar um málið beðnir um að snúa sér til lögreglunnar í Grindavík.
Klippt var á girðinguna gengt gantamótum Víkurbrautar og Hópsbrautar