Grunnskóla Grindavíkur var slitið þann 1. júní síðastliðinn. Skólaslitunum var skipt í fernt. Hópsskóla var slitið á sal skólans þar sem 1.-3. bekkur var kvaddur inn í sumarið og kennarar afhentu vitnisburð fyrir vinnu vetrarins. 2. bekkur F fékk einnig afhentan þátttökubikar fyrir besta þátttöku í víðavangshlaupi skólans í sumarbyrjun. Salurinn var þétt setinn af foreldrum og aðstandendum nemenda. Athöfninni í Hópskóla lauk með því að þeir sem vildu komu á sviðið og sungu Evróvisionframlag Íslands fyrir áheyrendur og allir, nánast með tölu, vildu!
Leikurinn færðist síðan á sal Grunnskólans við Ásabraut. Þar var nemendum á miðstigi afhentur vitnisburður af kennurum. Skólinn veitir viðurkenningar fyrir góðan námsárangur á stiginu. Bestum árangri á miðstigi náði Áslaug Gyða Birgisdóttir 6.-K og öðrum besta námsárangri náði Hrund Skúladóttir 6.-K. Viðurkenning fyrir hjálpsemi, jákvæðni og dugnað hlaut Jóna Níelsdóttir. Nemendur 4. bekkja afhentu Rauða Kross deild Grindavíkur afrakstur hlutaveltu sem haldinn var í tengslum við vorgleði skólans og Kjartan Adolfsson tók á móti gjöfinni með kærum þökkum.
Skólaslitum á unglingastigi var skipt í tvennt. Fyrst mættu nemendur úr 7.-8. bekkjum til að taka á móti einnkunnaspjöldum frá sínum umsjónarkennara. Venja er að veita viðukenningar í 7. bekk fyrir textílmennt og tæknimennt. Lionsklúbbur Grindavíkur veitir viðurkenningu fyrir tæknimennt og hlaut þau að þessu sinni Frifinnur Sigurðsson í 7.-P, styttu af ljóni. Elín Björg Eyjólfsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í textílmennt og fékk fingurbjörgina frá Kvenfélagi Grindavíkur. Fyrir bestan námsárangur hlutu þær Agata Jóhannsdóttir 8-.F fyrir bestan námsárangur og Katla Marín Þormarsdóttir 8.-E fyrir næstbestan árangur viðurkenningu frá skólanum.
Að lokum voru nemendur í 9.-10. bekk boðaðir á sal skólans. Þar útskrifar skólinn nemendur 10. bekkja og kveður þá nemendur eftir 10 ára starf við skólann. Að þessu sinni útskrifaði skólinn 46 nemendur sem halda til nýrra starfa í haust. Að vanda eru þeir kallaðir með nafni á svið þar sem þeir taka á móti einkunnum sínum úr höndum umsjónarkennara og skólastjóra.
Viðurkenningar fyrir bestan námsárangur í þessum tveimur bekkjum hlutu þær stöllur úr 9.L, Margrét Rut Reynisdóttir fyrir bestan árangur og Valgerður María Þorsteinsdóttir fyrir næstbesta árangur.
Hefð er fyrir því að veita viðukenningu þeim nemendum sem bestum árangri ná á grunnskólaprófi. Penistone bikarinn fyrir bestan árangur í ensku hlaut að þessu sinni Helgi Elías Almarsson 10.-H, bestum árangri í stærðfræði náði Magnús Már Ellertsson og fékk hann viðurkenningu frá Landsbankanum. Hann fékk einnig viðurkenningu frá skólanum fyrir bestan árangur á grunnskólaprófi. Erla Þorsteinsdóttir 10.-H náði bestum árangri í dönsku og íslensku og fékk viðurkenningu frá danska sendiráðinu og Landsbankanum. Íþróttabikar UMFG fengu þau Hinrik Guðbjartsson 10.-H og Julia Lane Sicat 10.-P fyrir framúrskarandi árangur í íþróttum. Þórdís Arnarsdóttir 10.-P fyrir framúrskarandi frammistöðu í textílmennt og viðurkenningu fyrir hjálpsemi, dugnað, jákvæðni og prúðmennsku í skólastarfinu fékk Hinrik Guðbjartsson 10.-H. Valdís Kristinsdóttir, fyrir hönd Rauða Krossdeildar Grindavíkur afhenti skólanum að gjöf hljóðfæri, Ukulele gítara, frá deildinni.
Eftir ávörp deildarstjóra, Ægis Viktorssonar, sem fór yfir starfið á unglingastigi í vetur og Halldóru Magnúsdóttur verðandi skólastjóra, sleit Pálmi Ingólfsson skólastjóri Grunnskólanum fyrir skólaárið 2011-2012 með góðum óskum um gleðilegt sumar og velfarnaðar fyrir 10. bekkinga.