Laugardaginn 9. júní verður haldinn vinnudagur í skógræktinni við Selskóg á vegum Skógræktarfélags Grindavíkur. Stefnt er að því að byrja um klukkan 10:00 og vera eitthvað framyfir hádegi. Markmiðið er að taka aðeins til hendinni í skóginum, hreinsa nánasta umhverfi og setja niður nokkrar plöntur. Boðið verður uppá grill og það er aldrei að vita nema að lagið verði tekið undir stjórn gítarleikara.
Allir velkomnir, ungir sem aldnir.
Skógræktarfélagið hefur stofnað Facebook síðu þar sem koma fram upplýsingar um starf félagsins og stjórnina.