Þriðja árið í röð var haldin dorgveiðikeppni á Sjóaranum síkáta á sunnudagsmorgninum. Þátttaka var virkilega góð en hátt í 40 krakkar mættu ásamt foreldrum og forráðamönnum.
Veiðin var hins vegar frekar dræm að þessu sinni. Aðallega var það ufsi sem beit á en stöku marhnútur veiddist einnig, koli og einn krabbi. Veitt voru nokkur verðlaun. Allir sem tóku þátt fengu verðlaunapening. Þá voru veitt verðlaun fyrir mesta aflann, þyngsta fiskinn og ljótasta fiskinn!
Efsta mynd: Verðlaunahafar í yngri flokknum, 12-16 ára. Magnús Magnússon 6 ára lengst til vinstri en hann veiddi allra mest.
Verðlaunahafar í flokki 12-15 ára.