Heiđrađir á Sjómannadaginn - Höfđingleg gjöf til Björgunarfélagsins Ţorbjarnar

  • Fréttir
  • 3. júní 2012

Sjómannadagurinn var haldinn hátíðarlegur í Grindavík á hátíðarhöldum Sjóarans síkáta og var gríðarleg þátttaka í blíðskaparveðri. Að vanda voru sjómenn heiðraðir fyrir störf sín af Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur. Að þessu sinni voru heiðraðir þeir Pétur Vilbergsson, Sverrir Vilbergsson og Sigmar Björnsson.

Í tilefni Sjómannadagsins fékk Björgunarsveitin Þorbjörn glæsilega gjöf frá Sjómanna- og vélstjórafélaginu, Þorbirni hf., Vísi hf, Einhamri ehf. og Stakkavík ehf. eða nýjan björgunarbát hlaðinn öllum nýjustu tækjum og tólum. Björgunarbáturinn hefur fengið nafnið Árni í Tungu og kemur í stað annars báts með sama nafni sem verður seldur. Séra Elínborg Gísladóttir sóknarprestur blessaði bátinn.

Veittar voru viðurkenningar fyrir kappróður, netabætingar og ýmislegt fleira en ræðumaður dagsins var Guðni Ágústsson.

Efsta mynd:
Viðar Geirsson frá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur, Bjarnfríður Jónsdóttir, Pétur Vilbergsson, Elín Þorsteinsdóttir, Sverrir Vilbergsson, Bjarný Sigmarsdóttir, Sigmar Björnsson og Ólafur Jón Arnbjörsson skólastjóri Fisktækniskóla Suðurnesja í Grindavík.

 Séra Elínborg Gísladóttir blessar nýjan björgunarbát Björgunarfélagsins Þorbjarnar í Grindavík.

Kvennasveit Vísis sem sigraði í róðrakeppninni.

Sturla GK vann róðrakeppnina fjórða árið í röð.

Fisktækniskólinn sem vann róðrakeppni landsveita.

Verðlaunahafnar í Íslandsmótinu í netaviðgerðum. Sigurvegarinn Theódór Vilbergsson er lengst til hægri.

Koddaslagurinn er fastur liður á Sjómannadaginn.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir