Sjómannadagurinn haldinn hátíđlegur á Sjóaranum síkáta

  • Fréttir
  • 3. júní 2012

Hápunktur Sjóarans síkáta er í dag, Sjómannadaginn. Kl. 11 fer fram fram árleg dorgveiðikeppni og síðan tekur við fjölbreytt dagskrá sem stendur fram á kvöld en þá verða stórtónleikar með hljómsveitinni Valdimar í íþróttahúsinu. Kl. 13:00 verður Sjómannamessa í Grindavíkurkirkju. Ræðumaður er Haukur Guðberg Einarsson sjómaður.

Ritningarlestra lesa sjómannshjónin Þorgeir Guðmundsson og Hildur Hákonardóttir. Helga Guðný, dóttirþeirra, ber kransinn niður að minnisvarðanum Von. Karlakór Keflavíkur leiðir söng undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar. Organisti er Helga Bryndís Magnúsdóttir. Prestur: Sr. Elínborg Gísladóttir.

Kl. 14:00 verða hátíðarhöld við Kvikuna í tilefni Sjómannadagsins. Ávarp flytur Guðni Ágústsson. Heiðursviðurkenningar og verðlaunaafhending fyrir kappróður. Umsjón: Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur. Karlakór Keflavíkur syngur nokkur lög. Kararóður, koddaslagur og flekahlaup verður á sínum stað við höfnina og sjópulsan verður á ferð um höfnina. Þá verður glæsileg barnadagskrá og fótboltamót hverfanna. Jafnframt verður Íslandsmót í sjómanni og kerlingahlaup. Þá verður sýning á fornbílum, furðufiskum og sýning á gömlum dráttarvélum, landbúnaðarækjum og bílum.

Dagskrána er hægt að nálgast á www.sjoarinnsikati.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir