Því einmuna rjómaveðurblíða við upphaf Sjóarans síkáta í gærkvöldi! Bærinn skreyttur hátt og lágt, götugrill um allan bæ og svo frábær litaskrúðganga úr öllum litahverfunum fjórum niður að höfn þar sem tók við skemmtidagskrá. Grindvíkingar og gestir skemmdu sér konunglega.
Trúbadorar hverfanna ásamt ungviðinu tóku lög og settu skemmtilegan svip á hátíðina. Róbert Ragnarsson bæjarstjóri ávarpaði gesti, veitt voru verðlaun fyrir bestu skreytingarnar og síðan tóku við tónlistaratriði. Allt ætlaði um koll að keyra þegar Páll Óskar mætti á svæðið og þá var karlakór Sjómannaskólans flottur. Þá sáu Ingó, Hreimur og Veðurguðirnir um bryggjuballið þar sem allir voru í stuði.
Litskrúðugur mannfjöldi.
Appelsínugul og sæt.
Rauða hverfið ánægt með sigurinn!
Yngismeyjar!
Súpan frá Northern Light Inn sló í gegn.
Hreimur og Ingó voru hrikalega flottir.
Karlakór Sjómannaskólans var aldeilis flottur.
Páll Óskar er fagmaður og fékk alla í stuð!