Sjómannadagskaffi og skottmarkađur!

  • Fréttir
  • 1. júní 2012

Kvenfélag Grindavíkur verður með kaffisölu í Grunnskóla Grindavíkur við Ásabraut sunnudaginn 3. júní kl. 15.00 - 17.00. Minnum félagskonur á að koma með köku í kaffið, móttaka á kökum hefst kl. 11 á sunnudagsmorgun. Ef að konur eru að heiman um helgina, en vilja skila inn sinni köku fyrir helgi endilega hafa samband við formann Kvenfélagsins.

Verð fyrir kaffihlaðborð er 1.000 kr. fyrir fullorðna, 500 kr. fyrir 16 ára og yngri og frítt fyrir yngri en 12 ára í fylgd með fullorðnum.

Á sama tíma bjóðum við upp á skemmtilega nýjung: Skottmarkað! Mættu á bílnum, greiddu 1000 kr. fyrir stæðið, opnaðu skottið og seldu dótið úr bílskúrnum, geymslunni eða háaloftinu sem að þú hefur ekki lengur not fyrir.

Hlökkum til að sjá Grindvíkinga og gesti í kaffinu, eigið skemmtilega helgi á Sjóaranum síkáta.

Kær kveðja, stjórn Kvenfélags Grindavíkur


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir